500gr rækja 300gr þorskur eða annar hvítur fiskur 1 stk hvítlauksrif 2 tsk karry mauk (mild curry paste) 1 tsk tómat purre 1 stk laukur 1 stk rautt chilli aldin 2 msk ferskur kóriander 2 msk sesamolía 1 tsk sítrónusafi 1 bolli hveiti salt og pipar olía til steikingar Aðferð: Maukið fiskinn og rækjurnar í matvinnsluvél og setjið til hliðar Maukið laukinn og hvítlaukinn í matvinnsluvél, bætið sesamolíunni, tómat purre, sítrónusafanum og karrý maukinu saman við. Setjið svo saman við fiskinn og blandið vel. Saltið og piprið. Saxið chilli aldin (taka fræin frá) og kórianderinn út í og setjið hveitið síðast. Mótið í bollur og steikið í olíu á pönnu. Hugmynd að sósu með: 400 ml kókosmjólk 1 stk sítrónu gras 1 tsk karry mauk 2 stk límónulauf 1 tsk grænmetiskraftur Aðferð: Setjið kókosmjólkina upp til suðu, skerið aðeins í sítrónugrasið og bætið út í mjólkina ásamt límónulaufinu og karry maukinu. Sjóðið saman í 5 mínútur. |
Velkominn á matarlyst.is * Tek að mér veislur stórar sem smáar. Hafið samband í síma 847-9730 eða sendið mér fyrirspurn á lavachef@gmail.com * Aðalbjörn Jóelsson Matreiðslumaður
Sunday, April 25, 2010
Rækjubollur
Friday, April 23, 2010
Graskerssúpa með kóriander-rjóma
6 msk cumin
8 msk sjerríedik (má sleppa)
3 kg grasker (eða sætar kartöflur)
2 stk laukur
8 stk hvítlauksgeirar
6 msk kjúklingakraftur
4 l vatn
100g smjör
1,5 l rjómi
Thursday, April 22, 2010
Frönsk Súkkulaðikaka
Hráefni:
250g súkkulaði (70%)
220g smjör
5 stk eggjahvítur
120g sykur
5 stk eggjarauður
40g hveiti
Aðferð: Sigtið hveitið og bræðið smjörið og súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Þeytið eggjahvítur og bætið sykri út í á meðan þeytt er. Hellið eggjarauðunum út í súkkulaðiblönduna og blandið þeyttum eggjahvítum gætilega saman við með sleif. Smyrjið 24cm smelluform og stráið á það hveiti. Hellið deiginu í formið og bakið við 160°c í 25-30 mín.
Tuesday, April 20, 2010
Grænmetisbaka
Botn:
1 dl haframjöl
2 dl hveiti
100 gr smjörlíki
100 gr skyr
2 msk kalt vatn
Grænmeti:
250 gr spergilkál
250 gr blómkál
50 gr sveppir
1 lítil græn paprika
1 lítil rauð paprika
olía til steikingar
Sósa:
2 stk egg
2 ½ dl rjómi
4 dl rifinn ostur
Blandið saman haframjöli og hveiti, brytjið smjörlíkið út í, hrærið sykri saman við og vætið í með vatni. Hrærið vel saman og geymið deigið í ísskáp í 30-40 mín. Sjóðið spergilkál og blómkál í léttsöltu vatni í 10 mín. Sneiðið sveppina og skerið paprikurnar í bita, léttsteikið sveppi og paprikur í olíu. Fletjið deigið út og setjið í eldfast mót, sem er um 25-28 cm í þvermál, raðið grænmetinu ofan á deigskelina. Þeytið saman egg og rjóma, blandið rifna ostinum saman við, hellið blöndunni yfir grænmetið. Bakið við 180-200°C í 30 mín og berið fram.