500gr rækja 300gr þorskur eða annar hvítur fiskur 1 stk hvítlauksrif 2 tsk karry mauk (mild curry paste) 1 tsk tómat purre 1 stk laukur 1 stk rautt chilli aldin 2 msk ferskur kóriander 2 msk sesamolía 1 tsk sítrónusafi 1 bolli hveiti salt og pipar olía til steikingar Aðferð: Maukið fiskinn og rækjurnar í matvinnsluvél og setjið til hliðar Maukið laukinn og hvítlaukinn í matvinnsluvél, bætið sesamolíunni, tómat purre, sítrónusafanum og karrý maukinu saman við. Setjið svo saman við fiskinn og blandið vel. Saltið og piprið. Saxið chilli aldin (taka fræin frá) og kórianderinn út í og setjið hveitið síðast. Mótið í bollur og steikið í olíu á pönnu. Hugmynd að sósu með: 400 ml kókosmjólk 1 stk sítrónu gras 1 tsk karry mauk 2 stk límónulauf 1 tsk grænmetiskraftur Aðferð: Setjið kókosmjólkina upp til suðu, skerið aðeins í sítrónugrasið og bætið út í mjólkina ásamt límónulaufinu og karry maukinu. Sjóðið saman í 5 mínútur. |
Velkominn á matarlyst.is * Tek að mér veislur stórar sem smáar. Hafið samband í síma 847-9730 eða sendið mér fyrirspurn á lavachef@gmail.com * Aðalbjörn Jóelsson Matreiðslumaður
Sunday, April 25, 2010
Rækjubollur
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment